Finnst mjög vanta sorpílát við göngustíga í Úlfarsárdalnum.
Er mikið úti að ganga í dalnum með hundinn minn, og ég hef tekið eftir því að fólk er að henda frá sér hundaskítspokum við göngustígana. Í dalnum eru fá sorpílát og tel ég að fólk sé að henda þessu frá sér vegna vöntunar á þeim. Ef fleiri sorpílát væru þá tel ég að þetta minnki mikið.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation