Setja upp útilistaverk um þvottakonurnar á Laugaveginn
Á aðalgötunni okkar - Laugaveginum - er ekkert sem skýrir merka sögu götunnar og heiti hennar. Ég legg til að haldin verði samkeppni um útilistaverk á Laugavegi til að heiðra þvottakonurnar sem roguðust í öllum veðrum fram og aftur götuna með þvott á leið í þvottalaugarnar í Laugardal. Slíkt listaverk gæti, auk þess að fegra borgina, kæta ferðamenn og varpa ljósi á söguna, verið viðleitni til að gera meira úr hlut kvenna í Íslandssögunni og óbreytts almúgans. Þessar konur voru algjörar hetjur!
Fullkomna listaverkið í þetta hlutverk er til nú þegar. Það eru þvottakonur Ásmundar Sveinssonar.
Sammála Steinari - en voru engir áningarstaðir á leiðinni, sem hægt er að merkja líka ? það mega alveg vera fleiri eitt skilti.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation