Fá aftur afnot fyrir strætófarþega á Lækjartorgi í húsinu
Það eru oft margir að bíða eftir Srætó á Lækjartorgi og þar er napurt í norðanátinni, væri ekki hægt að fá aftur afnot af húsinu sem þar er? Standi maður þar inni, sér maður í tíma þegar vagnarnir koma niður Hvefisgötu. Við nyðri stoppistöð Strætó á Grensás er ekkert stæði fyrir farþega, er ekki hægt að taka frá eitt bílasæði þarna og merkja það Strætó, svo maður þurfi ekki að troðast á milli bíla, bæði úr og í Strætó?
Sagði ekki allt sem ég vildi sagt hafa
já þeir ljúfu dagar en nei of dýrt , bara klæða af sér kuldann eða panta skárra skýli , man þegar róni koma í sjoppuna þarna inni og keypti sígó og kveikti sér í sem var bannað inni, afgreiðslumaður kom framfyrir til að ýta honum út , kannski sló hann frá sér , afgreiðir sparkaði svo oft í hann liggjandi á gólfinu , sem var kannski of mikið og ekki traustvekjandi fyrir farþegana sem biðu , hver yrði næstur og af hvaða ástæðu.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation