Verndum miðborgina, svo að við Íslendingar, afkomendur okkar og ferðamenn fái notið miðborgarinnar í framtíðinni. Miðbær Reykjavíkur er okkur dýrmæt og hefur mikla sögu. Hún er einstök að gerð og hefur mikinn sjarma. Setjum því miðbæinn okkar á heimsminjaskrá Unesco, áður en það verður of seint.
Ef við verndum ekki borgina okkar, glötum við þessum tengslum sem við eigum við fortíðina og söguna. Miðbær Reykjavíkur er einstakur, höldum í okkar sérkenni og sögu, jafnt fyrir okkur sjálf sem ferðamenn. Miðbærinn hefur ennþá mikinn sjarma og hlýju, Íslendingar koma frekar í bæinn, og útlendingar munu þá hafa áhuga á að sækja okkur heim um ókomna framtíð.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation