Hvað viltu láta gera? Búa til tennisvöll við hlið klifurturnsins á malarvellinum austan megin á túninu. Hvers vegna viltu láta gera það? Það eru nær engir almennings tennisvellir í Reykjavík. Þetta væri líka góð viðbót við lítið nýttan hluta túnsins.
Frábær hreyfing og og viðbót við útivist og íþróttir á Klambratúni. Nýta plássið!
Frábær hreyfing sem hentar öllum aldurshópum og hægt að stunda tennis stóran hluta ársins (meðan færð leyfir). Gott að auka fjölbreytni í aðstöðu til íþróttaiðkana og plássið er til staðar.
Tennis er frábær íþrótt og það er mikil hefð erlendis að hafa tennisvelli í almenningsgörðum. Fjölbreyttni í afþreyingu á Klambratúni laðar að sér fleira og fjölbreyttara fólk, sem er bara gott fyrir þær menningarstofnanir og veitingastaði í nágreninu
Mikill uppgangur í íþróttinni. Leiðinlegt að þurfa að fara í kópavog eða laugardalinn í tennis á útivöllum sem eru ekki í góðu standi. Blak, fótbolti, folf og klifur hefur slegið í gegn á túninu, sé ekki afhverju tennis ætti ekki að gera það líka.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er í uppbyggingu og/eða breytingar fyrirhugaðar á komandi árum og því ekki tímabært að kjósa um að svo stöddu. Það er í skoðun hjá ÍTR að fjölga tennisvöllum í Reykjavík og fer þessi hugmynd áfram sem ábending til ÍTR. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation