fá leifi frá borginni til ad nýta tóm hús í niðurníðslu
getur borgin set reglur um ad hús sem standa tóm í jafnvel mörg ár séu tekin og notuð eda færð fólki sem hefur áhuga á að hugsa um þau, gera þau upp og þar með fegra umhverfið og nota húsin. í staðin fyrir að þau standi tóm og skemmist. það eru mikið af fallegum gömlum húsum sem eru í niðurníðslu í reykjavík og líka mikið af fólki sem mundi elska að búa í þeim, vinna í þeim, gera þau upp og kannski fá í staðin að búa ódýrt eða jafnvel frítt.
Ég hef hlustað og tekið þátt í samræðum í mörg ár þar sem fólk undrar sig á því að hús séu látin liggja undir skemmdum.Ég hef hlustað samræður hjá ferðamönnum um hve gömul hús í Reykjavík séu merkileg.Upp á síðkastið hef ég svo frétt af ótal mörgum sem vantar vinnuaðstöðu, þá helst fyrir listsköpun. Nú er tími til að styrkja menningarvirði borgarinnar og halda einhvern veginn í allt það hæfileikaríka fólk sem er ennþá hérna með því að útvega vinnuaðstöðu á hagstæðu verði og bjarga gömlum perlum.
það er oft sagt að eigendurnir vilji hafa húsin í niðurníðslu til að fá leyfi til að rífa og byggja svo eitthvað dýrt. og viljá þá ekki íbúa í þeim . í sumum borgum er bannað að hafa í niðurníðslu. minnir mig.
Þettað er ekki hægt því eignarétturinn er það sterkur og það þarf lagabreytingu til .
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation