Stækka bílastæðið við Krónuna í Jafnaraseli !
spurning um að breyta öllu svæðinu og götunni í bílastæði og hafa einstefnu inn fyrir miðju svæðis og út milli húsanna eða gegnum sorpu og færa sorpu norðar. en þá færi gatnagerðin og sorpu umferð í gegnum stæðið. ég var búinn að setja þetta inn hélt ég áður , er hreynsað til hérna
Ég er að biðja um að aðgengi að bílastæðinu verði bæt ! Það þarf ekki endilega að byggja nýtt, það var einungis hugmynd.
Það er skelfilegt að aðhafast á þessu bílastæði, ég legg til að það verði annað hvort byggt annað bílastæði á bakvið eða að bílar hafi aðgang að bílastæðinu frá fleiri en einum inngnagi, t.d. frá bílastæðinu við hliðina.
Þetta bílastæði er slysagildra - hvort það er Krónan eða Reykjavíkurborg sem tekur frumkvæðið þá þarf eitthvað að aðhafast. Hef oft horft á smáárekstra sem kosta sitt en óttast um öruggi fullorðinna og barna sem þurfa að ganga um bílastæðið til að komast milli ökutækja og verslunar inn á milli bíla sem bakka úr öllum áttum.
þessi vefur gleypir það sem maður skrifar og lætur það hverfa , datt í hug að breyta öllu svæðinu í bílastæði og hafa einstefnu í gegnum miðjuna og út um sorpu eða færa sorpu norðar , eða út milli húsanna, en það er önnur lóð, nema krónugámur og krónudyr verði færðar á austurhlið hússinns.
Afhverju ætti Borgin að borga fyrir bílastæði hjá einkafyrirtæki ? Er það vanalega gert ? Ég fer oft í þessa Krónu á hjóli og aðgengið er til fyrirmyndar.
Á sama tíma og verið er að eyða 10 milljörðum í almenningssamgöngur finnst mér afleitt að stækka bílastæði fyrir framan matvöruverslun.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation