Rauðarárholtið frá Snorrabraut og niður að sjó verði sér hverfi. Við höfum orðið illilega fyrir barðinu á nýframkvæmdum, sem ganga freklega á lífsgæðin. Tillögur um lagfæringa á þessu svæði innan Hlíðakverfisins fá almennt mjög dræmar undirtektir enda aðstæður hér oft frábrugðnar.
Bæta lífsgæði og koma á framfæri röddum íbúa, sem mögulega heyrðust.
Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018. Skipulagsferill þessa verkefnis er of langur fyrir tímaramma verkefnisins Hverfið mitt. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi aðila. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation