Jólalokun á Bankastræti og Laugavegi rétt fyrir jól.
Jólalokun á Bankastræti og Laugarvegi
Gæti ekki verið gaman að endurtaka leikinn frá því í sumar og loka hluta Laugavegar og Bankastrætis í desember. Mætti gera þetta alla laugardaga og síðustu 3-4 dagana fyrir jól. Ef vel tekst til gæti þetta fært mikið líf í miðborgina og jafnvel orðið kveikjan að því að Reykjavík yrði álitin skemmtilegur valkostur fyrir stutta jólainnkaupaferð fyrir fólk frá Evrópu og Austurströnd Bandaríkjanna.
Jólalokun á Bankastræti og Laugarvegi
Það mætti nú vel ganga enn lengra og hafa þessar götur ávallt sem göngugötur. Reynslan sýndi það í sumar að umferð gangandi vegfarenda jókst mikið samhliða sölu í nærliggjandi búðum. Enda hef ég aldrei skilið þá lógíg búðareiganda að ég fari kaupa mun meiri vörur ef ég er föst í áldósinni minni og fæ hvergi bílastæði föst í umferð með öðrum pirruðum bílstjórum spúandi eiturgufum á gangandi vegfarendur. Þá er nú betra að skella börnunum í kerruna og rölta óáreittur um götur miðbæjarins.
Ég vann mikið á laugarveginum sem tónlistarmaður síðustu dagana fyrir jól og ég tók eftir því að það var beinlínis orðið þröngt á gangstéttunum, sér i lagi síðustu 2 daga fyrir jól. Bílaumferðin var hamlandi fyrir gangandi vegfarendur. Á næsta ári má alveg taka í myndina að opna fyrir gangandi umferð eftir þann 20.des. Ég er handviss um að það mundi auka enn lífið og jólastemminguna sem miðborgin færir okkur. Svo er þetta ekki lokun -heldur Opnun fyrir gangandi umferð!
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation