Hraðahindrun efst í Reyrenginu sé færð fyrir neðan gatnamót
Þessi hraðahindrun er þannig staðsett að hún er fyrir ofan gatnamót og er staðsett í halla og því ófær fyrir umferð frá vinstri og hægri á veturnar. Til að komast yfir hana á venjulegum fólksbíl þarf að keyra neðar í götuna og ná henni á ferð sem skapar verulega hættu fyrir skólabörn sem verða að ganga þarna yfir en skólinn er þarna rétt hjá.
burt með þessa hraðahindrun og það þarf enga aðra í staðin, þarna hefur hraðakstur aldrei verið vandamál og það er algjör óþarfi að hafa hraðahindrun á þessu svæði.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation